Gaman er greina frá því að Fixing Bugs in Your Sleep: How Genetic Improvement Became an Overnight Success var valin besta vísindagreinin á málþingi á GECCO 2017 í Berlín 16. júlí síðastliðinn.
Vísindagreinin fjallar um sérsniðið tölvukerfi fyrir endurhæfingu, sem notar sjálfvirka forritun til að viðhalda sjálfu sér. Á vinnutíma er tölvukerfið notað í daglegum rekstri af sérfræðingum, til þess að halda utan um endurhæfingu þátttakenda. Í lok dags þegar síðasti starfsmaður skráir sig út heldur tölvukerfið áfram að vinna og sjálfgreinir sig út frá skráðum notendamynstrum. Það býr til gögn til prófunar útfrá notendamynstri dagsins og notar svo Genetic Improvement til þess að laga öll skráð villuskilaboð. Á fyrstu 6 mánuðunum fann viðmótið, skráði og lagaði 22 villur. Aðferðin hefur reynst kröftug til þess að laga og þróa forrit sem eru þegar komin í daglegan rekstur.
Tölvukerfið umrædda er notað við utanumhald í Janusi endurhæfingu.
Hægt er að nálgast greinina með því að smella hér.