Stofnendur EAS hafa birt nýja vísindagrein, Predicting Changes in Quality of Life for Patients in Vocational Rehabilitation. Greinin var unnin í samstarfi við Kristinn Tómasson einn höfunda mælitækisins Heilsutengdra lífsgæða og Janus endurhæfingu, þar sem völvan er í notkun. Niðurstöður rannsóknarinnar voru kynntar á ráðstefnunni IEEE Conference on Evolving and Adaptive Intelligent Systems EAIS 2018 í lok maí mánaðar.
Rannsóknarspurningin var hvort Völvan geti spáð fyrir um niðurstöður næstu mælinga mælitækisins Heilsutengdra lífsgæða. Niðurstaðan er að það er hægt og að jafnaði 6 mánuðum áður en spurningarlistanum er svarað.
Þessi niðurstaða er hugsanlega nytsamleg viðbót í verkfærakistu þeirra sem sinna flókinni endurhæfingu eða sambærilegum þjónustum. Fyrir áhugasama er hægt að nálgast greinina með því að smella hér.