Algengt er að fyrirtæki þurfi að aðlagast flóknum tölvukerfum, þar sem tilbúin kerfi eru oft keypt af ólíkum ástæðum. Tilbúð kerfi virðist oft vera góð lausn, þar sem önnur fyrirtæki hafa oft notendareynslu. Aftur á móti hafa þessi kerfi oft tilhneigingu til þess að vera flókin og hluti af þeim illa eða ekkert nýttur. Ástæðan fyrir því er að kerfið er ætlað að höfða til breiðs markhóps. Flókið/ómögulegt getur verið síðan að aðlaga tilbúin kerfi að þörfum fyrirtækja, vegna þess að ekki var gert ráð fyrir ákveðinni notkun í upphafi. Vegna þessa hafa sum fyrirtæki þurft að fjárfesta i fleiri en einu kerfi, sem getur fljótt orðið kostnaðarsamt og tímafrekt.
Easy Advanced Systems var stofnað til þess að koma til móts við þarfir fyrirtækja sem vilja sérsniðin kerfi og lausnir. Við kaupum engin tilbúin kerfi sem eru síðan aðlöguð, heldur eru öll kerfi hjá okkur forrituð og hönnuð frá grunni með þarfir notenda í huga. Þó forrit eru gerð frá grunni þurfa þau samt sem áður ekki að vera dýrari heldur en tilbúin og aðlöguð kerfi. Easy Advanced Systems byggir á sérfræðiþekkingu sem fengin er úr fræðaheiminum og innleidd er í hugbúnaðarlausnir.